31.10.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Styðja við Amorim og undirbúa leikmannakaup

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gerry Cardinale forseti AC Milan er mjög bjartsýnn fyrir nánustu framtíð félagsins og lofar leikmannakaupum í janúarglugganum.

TENGT EFNI
Pulisic búinn að skrifa undir (Staðfest)
Hann segir að stjórnin standi þétt við bakið á Rúben Amorim þjálfara, þrátt fyrir slæm úrslit í tveimur af síðustu þremur leikjum og slæma byrjun í Evrópudeildinni.
Milan er með tvö töp í þremur leikjum í Evrópu og tapaði í fyrsta sinn í Serie A deildinni í miðri viku - á heimavelli gegn Bologna. Tapið er óvænt en Milan situr þó með 18 stig eftir 9 fyrstu umferðir deildartímabilsins.
„Rúben Amorim nýtur fulls stuðnings frá stjórninni, starf hans er langt frá því að geta talist í hættu. Við erum ánægð með hann. Ég treysti Amorim, ég valdi hann sjálfur í þetta starf," sagði Cardinale við La Gazzetta dello Sport.
„Við ætlum að kaupa nýja leikmenn í janúar, planið er að vera aggressívir á markaðnum. Okkur tókst ekki að framkvæma allt sem við vildum í sumar og munum halda okkar starfi áfram í vetrarglugganum."
Milan keypti Goncalo Ramos, Diego Moreira og Mario Gila fyrir rúmlega 150 milljónir evra í sumarglugganum og seldi leikmenn fyrir tæpar 90 milljónir.
Þá var Christian Pulisic að skrifa undir nýjan samning við félagið og er Adrien Rabiot næstur á lista. Núverandi samningur hans rennur út sumarið 2028, en í honum er einnig möguleiki á eins árs framlengingu.