Fotbolti.net
31.12.07 - 12:00
Hafliði Breiðfjörð

Vinsælustu fréttir ársins á Fótbolta.net

Myndin við vinsælustu frétt ársins.

Myndin við vinsælustu frétt ársins.

Canon

Mynd: Getty Images

Nú er árið 2007 að líða og á árinu hafa birst hér á Fótbolta.net rúmlega 13.500 fréttir sem gerir meðaltalið um 37 fréttir á degi hverjum á árinu. Við höldum til haga hjá okkur upplýsingum um þær fréttir sem mest eru skoðaðar á árinu og í tilefni af því að árinu er að ljúka birtum við hér að neðan lista yfir 25 vinsælustu fréttir ársins.
1. Var Pétur Jóhann með Tevez og Anderson á Old Trafford?
Dags: 15. ágúst
Ip tölur: 9.783
Flettingar: 14.364
Vinsælasta frétt ársins var í raun ekki eiginleg fótboltafrétt en hún fjallaði um mynd sem var tekin á fótboltaleik. Fjöldi annarra vefsíðna linkaði á síðuna sem gerði það að verkum að nú í lok árs er hún vinsælasta frétt ársins 2007. Þarna er fjallað um mynd af manni sem er áhorfandi á leik Manchester United í ágúst og svipar gífurlega til Péturs Jóhanns Sigfússonar leikara.

2. Skandall í vali leikmanns ársins í Landsbankadeild kvenna
Dags: 19. október
Ip tölur: 7.969
Flettingar: 11.364
Leikmenn Landsbankadeildar kvenna tóku sig saman og ákváðu að velja Margréti Láru Viðarsdóttur ekki besta leikmann deildarinnar. Málið hlaut gífurlega umfjöllun í öllum fjölmiðlum landsins í kjölfar þessarar fréttar og þó Margrét Lára hafi haft stuðning almennings frá upphafi málsins fékk hún bestu sárabæturnar í desember er hún var fyrst valin Knattspyrnukona ársins hjá KSÍ og svo Íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna.

3. Eyjólfur útskýrir af hverju hann er í símanum á meðan leik stendur
Dags: 9. september
Ip tölur: 7.887
Flettingar: 10.136
Þegar Ísland mætti Spánverjum í ágúst vakti athygli að Eyjólfur Sverrisson þáverandi landsliðsþjálfari var mikið í símanum í varmannaskýlinu á meðan leikurinn var í gangi. Í þessari frétt útskýrði Eyjólfur málið og hann var ekki að huga að hlutabréfunum á hlutabréfamarkaðnum heldur var Bjarni Jóhannsson aðstoðarmaður hans ofar á leikvangnum og sá betri yfirsýn yfir leikinn og færði Eyjólfi upplýsingar um það sem hann sá.

4. Ball sparkaði í Ronaldo sem lá á vellinum (Með myndbandi)
Dags: 6. maí
Ip tölur: 7302
Flettingar: 13.299
Fréttir sem vísa á myndband til stuðnings því sem fréttin lýsir eru oft meðal vinsælustu frétta síðunnar. Af þeim fréttum er þessi sú vinsælasta á árinu en hún lýsir hrottaskap Michael Ball leikmanns Manchester City í garð Cristiano Ronaldo leikmanns Manchester United í grannaslag liðanna í maí.

5. Ásgeir Elíasson er látinn
Dags: 9. september
Ip tölur: 6.874
Flettingar: 10.577
Ástsælasti þjálfari Íslands, Ásgeir Elíasson, varð bráðkvaddur á heimili sínu og fréttin greinir frá því. Ásgeir var fyrrum landsliðsþjálfari Íslands og hafði náð frábærum árangri með íslenska landsliðið á sínum tíma í starfi og fráfall hans var mikið áfall fyrir þjóðina.

6. Hvað var Eiður Smári að gera í Mílanó?

7. Hver verður ráðinn þjálfari íslenska landsliðsins?

8. Söngvari Jeff Who? með endurkomu í boltann í Víkinni

9. Eiður Smári nýklipptur í leikmannahópi Börsunga

10. Eiður Smári einn fjögurra á æfingu Barcelona

11. Dida gerði sig að athlægi með leikaraskap í kvöld (Myndband)

12. Diario Sport: Rijkaard treystir Eiði Smára ekki

13. Eyjólfur bað Hermann að taka við fyrirliðabandi landsliðsins

14. Sir Alex Ferguson: Skammarlegt að lenda í þessum svívirðingum

15. Ronaldinho að fitna

16. Framherji Man Utd í raðir Aftureldingar (Staðfest)

17. Rijkaard tjáir sig um afhverju Eiður Smári er ekki í liðinu

18. Myndband af ótrúlegu marki Paul Robinson


19. El Mundo Deportivo: Hvar var Eiður klukkan sjö í gærkvöldi?

20. ,,Eyjólfur Sverris er ykkur að kenna!´´
Margrét Lára var ekki valin best í Landsbankadeild kvenna.

Margrét Lára var ekki valin best í Landsbankadeild kvenna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjólfur Sverrisson í símanum.

Eyjólfur Sverrisson í símanum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fréttir af Eiði Smára eru gríðarlega vinsælar,

Fréttir af Eiði Smára eru gríðarlega vinsælar,

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.