Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   þri 24. júní 2014 07:30
Elvar Geir Magnússon
Úrvalslið 9. umferðar - Haukur Heiðar í fjórða sinn
Haukur Heiðar Hauksson hefur verið afskaplega góður í liði KR.
Haukur Heiðar Hauksson hefur verið afskaplega góður í liði KR.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Mads Nielsen var traustur fyrir norðan.
Mads Nielsen var traustur fyrir norðan.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Bakvörðurinn Haukur Heiðar Hauksson hefur átt frábært tímabil og er nú valinn í úrvalslið okkar í fjórða sinn í sumar. Hann lék glimrandi vel þegar KR-ingar komu til baka gegn ÍBV. Gary Martin skoraði þar sigurmarkið og er einnig í liði 9. umferðar.

Kristján Gauti Emilsson er líka í fjórða sinn í úrvalsliðinu en hann átti skínandi frammistöðu í 4-0 sigri FH gegn Fram í lokaleik umferðarinnar í gær.

Víkingar eiga tvo fulltrúa eftir góðan 1-0 sigur gegn Breiðabliki og Keflavík tvo eftir að hafa rúllað yfir Fylkismenn í Árbænum. Mads Nielsen og Magnús Már Lúðvíksson léku vel fyrir Val sem sótti þrjú stig norður á Akureyri.



Úrvalslið 8. umferðar:
Ingvar Kale – Víkingur

Haukur Heiðar Hauksson – KR
Bergsveinn Ólafsson – Fjölnir
Mads Nielsen – Valur
Magnús Már Lúðvíksson – Valur

Sam Hewson – FH
Aron Elís Þrándarson – Víkingur
Elías Már Ómarsson – Keflavík

Kristján Gauti Emilsson –FH
Hörður Sveinsson – Keflavík
Gary Martin – KR

Fyrri úrvalslið:
8. umferð
7. umferð
6. umferð
5. umferð
4. umferð
3. umferð
2. umferð
1. umferð
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner