U21 landslið Svíþjóðar vann ótrúlegan 4-1 sigur gegn Frakklandi í gærkvöldi og tryggði sér sæti í lokakeppni EM 2015 í Tékklandi, og skildi Frakka eftir með sárt ennið.
Frakkland vann fyrri leikinn 2-0 og Svíar voru að sigla 3-0 sigri í höfn þegar Layvin Kurzawa skoraði fyrir Frakka, sem voru skyndilega á leið áfram á útivallarmörkum.
Kurzawa sýndi Svíum gríðarlega óvirðingu og fagnaði fyrir framan þá með því að heilsa að hermannasið. Hann átti heldur betur eftir að fá að éta hattinn sinn.
Mínútu síðar komust Svíar í 4-1 og fóru illa með Kurzawa, eins og sjá má hér að neðan.

Athugasemdir