Þróttur V. samdi í dag við Brynjar Kristmundsson en hann kemur frá Fram. Samningurinn er til næstu tveggja ára.
Brynjar, sem er fæddur árið 1992, er uppalinn í Ólafsvík og lék með Víkingum áður en hann fór í Val árið 2011. Hann lék sautján leiki fyrir Val áður en hann ákvað að taka Ólafsvíkurævintýrið aftur.
Hann samdi við Fram fyrir tímabilið í fyrra og lék nokkra leiki fyrir félagið áður en hann var sendur á lán til Gróttu. Hann lék þá með Fram í allt sumar en hefur ákveðið að söðla um.
Hann gerði tveggja ára samning við Þrótt Vogum sem mun leika í 2. deildinni á komandi tímabili.
Úlfur Blandon er þá nýr þjálfari liðsins en hann þjálfaði áður meistaraflokk kvenna Vals.
Athugasemdir