„Maður er svolítið hræður. Ég segi örugglega einhverja vitleysu en ég reyni að vanda mig," sagði Heimir Hallgrímsson, annar af landsliðsþjálfurum Íslands, léttur í bragði eftir sigurinn á Hollandi í kvöld.
„Auðvitað er maður hrikalega stoltur af strákunum. Liðsheildin var flott. Þetta var ekki okkar besti leikur. Við urðum passífir og vorum ekki nógu áræðnir þegar við vorum með boltann."
„Við sendum oft langa bolta og töpuðum honum. Þetta var ekki okkar besti leikur en það eru fimmtán ár síðan Holland tapaði heimaleik og skítt með það þó að þetta hafi ekki verið okkar besti leikur."
Ísland er einungis stigi frá sæti á EM og Heimir segir erfitt að missa sig ekki strax í fagnaðarlátum.
„Ég verð að viðurkenna að það er erfitt. Það er hægt að gera ótal margt annað en að halda ró sinni. Við verðum að sýna fordæmi. Við verðum að vera professional í okkar aðgerðum. Auðvitað reynir maður að halda andliti og vera ekki brosandi út að eyrum."
Heimir hélt því fram í viðtalinu að Tyrkir geti náð Íslandi þó að Ísland fái eitt stig í viðbót en það er þó ekki rétt. Hann segir ekkert annað koma til greina en sigur gegn Kasakstan.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir