Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   fim 04. febrúar 2016 11:45
Elvar Geir Magnússon
Gylfi í úrvalsliði vikunnar
Gylfi fagnar markinu á miðvikudaginn.
Gylfi fagnar markinu á miðvikudaginn.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson hefur leikið fantavel fyrir Swansea að undanförnu og fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína.

Hann var maður leiksins í 1-1 jafntefli gegn West Bromwich Albion á miðvikudaginn en hann kom Swansea yfir í leiknum með ansi laglegu marki.

Frammistaða Gylfa skilaði honum í úrvalslið umferðarinnar hjá WhoScored.com.

Hér að neðan má sjá úrvalsliðið en leikmaður vikunnar er Fraser Forster, markvörður Southampton, sem átti glimrandi leik í markalausu jafntefli gegn Arsenal.

Manchester United á flesta fulltrúa eftir sannfærandi sigur gegn Stoke.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner