Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   lau 06. júní 2015 14:20
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Útvarpsþátturinn í dag í heild sinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Komin er upptaka af útvarpsþætti Fótbolta.net sem var í hádeginu.

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru á sínum stað en blaðamaðurinn Björn Már Ólafsson heimsótti þáttinn þar sem spáð var í spilin fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Barcelona og Juventus munu etja kappi í kvöld.

Pepsi-yfirferðin verður á sínum stað en þáttastjórnendur munu opinbera hvaða leikmenn deildarinnar hafa komið þeim mest á óvart og hverjir ollið mestu vonbrigðunum í upphafi.

Þá var rætt um komandi landsleik gegn Tékklandi. Freyr Alexandersson, þjálfari Leiknis og kvennalandsliðsins, kom og ræddi um þennan stórleik sem verður á Laugardalsvelli næsta föstudag.

Upptökur af öllum þáttum koma inn á Vísi


Athugasemdir
banner
banner
banner