Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mán 07. apríl 2014 16:30
Elvar Geir Magnússon
Bale græðir 500 milljónir á því að fara ekki á HM
Bale var svakalegur í landsleik gegn Íslandi nýlega.
Bale var svakalegur í landsleik gegn Íslandi nýlega.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale hefði getað valið það að spila fyrir enska landsliðið en hjarta hans slær með Wales og ákvað hann að spila fyrir landslið þjóðarinnar.

Þetta val hans gerir það að verkum að kannski mun hann aldrei afreka það að spila á stórmóti landsliða.

Bale er nánast eini leikmaður Real Madrid sem er ekki á leið til Brasilíu í sumar til að spila á HM en það hefur þó sína kosti.

Samkvæmt Daily Mail fær Bale 2,5 milljónir punda eða tæplega 500 milljónir króna fyrir að eyða viku í Asíu í sumar. Hann mun heimsækja fótboltahátíðir í Indónesíu og Singapúr.

Hljómar eins og auðveld leið til að græða pening.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner