Það kom mörgum á óvart að Radamel Falcao var ekki hluti af leikmannahópi Manchester United sem tapaði 1-0 gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Knattspyrnustjórinn Louis van Gaal sagði eftir leik að Kólumbíumaðurinn hefði ekki verið meiddur, það hafi einfaldlega ekki verið pláss fyrir hann í hópnum.
Falcao, sem er á láni hjá United frá Monaco, var brjálaður þegar hann komst að því að hann væri ekki í hóp og samkvæmt nokkrum breskum fjölmiðlum rauk hann í burtu frá Old Trafford í offorsi á bifreið sinni.

Falcao hefur aðeins byrjað sjö leiki fyrir United á tímabilinu, meðal annars vegna meiðsla, og skorað í þeim tvö mörk. Hann er sagður fá tæplega 350 þúsund pund í vikulaun og er hann einn allra launahæsti leikmaður heims.
Athugasemdir