Margir muna eftir marki sem Darren Bent skoraði fyrir Sunderland gegn Liverpool árið 2009.
Bent átti þá skot sem fór í strandbolta sem var inni á vellinum og þaðan framhjá varnarlausum Pepe Reina í markinu.
Bent átti þá skot sem fór í strandbolta sem var inni á vellinum og þaðan framhjá varnarlausum Pepe Reina í markinu.
Þátttakandi í spurningaleiknum ,,The Chase" virðist lítið fylgjast með fótbolta ef marka má svar við spurningu í þættinum í vikunni.
Þar fékk þátttakandinn þrjá valmöguleika um það hvernig þetta furðulega mark hefði verið eins og sjá má hér að neðan.
Þátttakandinn taldi að ísbíll hefði verið á vellinum og að boltinn hefði farið þaðan og í netið. Áhugavert gisk!
Athugasemdir