German Burgos, aðstoðarþjálfari Atletico Madrid, var með ,,Google gleraugu" á bekknum gegn Getafe í gær.
Burgos fær með gleruagunum nýjustu tölfræði úr leiknum beint í æð en tölfræðin uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti.
Burgos vakti athygli í grannaslagnum gegn Real Madrid á dögunum en hann var þá rekinn upp í stúku eftir að hafa tekið tryllingskast á bekknum.

Þessi fyrrum leikmaður Atletico Madrid er mikill þungarokkari en hann hefur gefið út plötur með hljómsveit sinni The Garb.
Athugasemdir