Louis van Gaal, stjóri Manchester United, fagnar sigri liðsins gegn QPR í dag ekki síst vegna þess að konan hans bað um sigur í afmælisgjöf.
United vann 4-0 sigur gegn QPR á afmælisdegi konunnar hans Van Gaal og viðurkennir hann að tilefnið geri daginn enn sérstakari.
United vann 4-0 sigur gegn QPR á afmælisdegi konunnar hans Van Gaal og viðurkennir hann að tilefnið geri daginn enn sérstakari.
,,Þetta er einstakt því konan mín á líka afmæli í dag. Ég hef nú þegar gefið henni gjöf en hún sagði að stærsta gjöfin yrði sigur. Við gáfum henni sigur," sagði Van Gaal.
,,Ég sagði við leikmennina að við ættum að byrja upp á nýtt. Allir nýju leikmennirnir eru að spila, við erum með mjög klára leikmenn. Það mikilvægasta er ekki leikkerfið, heldur hugmyndafræðin."
Athugasemdir