Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   sun 15. apríl 2018 15:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger: Verðum að halda áfram að spila svona til að vinna
Arsene Wenger.
Arsene Wenger.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger var svekktur með seinni hálfleikinn í 2-1 tapi gegn Newcastle í dag.

Þetta var fimmta tap Arsenal í röð á útivelli, liðið hefur ekki enn unnið útileik í deildinni árið 2018.

„Þetta er sagt tímabilsins hjá okkur. Við erum 70% með boltann, komumst yfir en töpum. Þú veltir því fyrir því hvers vegna við töpum leiknum," sagði Wenger.

„Við fáum á okkur tvö mörk upp úr engu."

„Í seinni hálfleiknum fannst mér nokkrir leikmenn sýna þreytumerki eftir leikinn á fimmtudagskvöld. Við sýndum flottan liðsanda en úrslitin eru slæm. Það er erfitt að kyngja þessu."

Um útivallarárangurinn: „Auðvitað er þetta áhyggjuefni. Við erum vanalega sterkir á útivelli en við verðum bara að halda áfram. Ef við ætlum að vinna útleiki þá verðum við halda áfram að spila svona."



Athugasemdir
banner
banner
banner