Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   þri 16. apríl 2013 16:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Goal 
Messi verður með gegn Bayern
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur staðfest að Lionel Messi verði með liðinu gegn FC Bayern í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku.

Messi æfði án vandræða í morgun og hann virðist vera alveg búinn að jafna sig af meiðslum aftan í læri.

Messi meiddist í fyrri leiknum gegn PSG á dögunum en hann kom inn á sem varamaður í síðari leiknum í síðustu viku og hjálpaði Barcelona að komast áfram.

Argentínumaðurinn hefur ekki tekið þátt í síðustu tveimur leikjum Barcelona í spænsku deildinni en hann verður klár í slaginn fyrir leikinn gegn Bayern.

Aftur á móti er óvíst hvort Messi muni spila með Barcelona gegn Levante á laugardag eða hvort hann verði hvíldur þar fyrir átökin gegn Bayern í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner