KA fékk ÍBV í heimsókn í einum skemmtilegasta leik sumarsins á Akureyrarvelli í dag þar sem KA vann 6-3 sigur.
Fyrsti sigur KA manna síðan 5. Júní og Túfa var að vonum mjög sáttur með að fá 3 stig í dag.
„Ég er bara mjög sáttur og mjög ánægður. Við vorum búnir að bíða lengi eftir sigri og mínir menn voru að vinna helvíti mikið til að vinna þessa punkta, bæði á æfingasvæðinu og andlega. Þeir sýna bara þennan karakter sem ég veit að þeir hafa og það skapar þennan sigur fyrir okkur."
KA lentu 2-0 undir eftir aðeins 14 mínútur en Túfa segist aldrei hafa misst trúnna á sínu liði.
„Ég var mjög ósáttur með okkar byrjun því þegar þú ferð í leik á þínum heimavelli þar sem allt er undir áttu ekki að byrja 2-0 undir. Ég get sagt ykkur það strax að ég byrjaði strax að öskra á mína stráka að halda haus, ég missti aldrei trúnna á okkur og því sem við vorum að gera. Það sést seinna í leiknum þar sem við skorum sex mörk og hefðum getað skorað sex í viðbót. En svo eru líka hlutir varnarlega sem við verðum virkilega að laga sem fyrst."
KA hafa verið að lenda í meiðslum í sumar og Túfa segist vera að leita að einhverri styrkingu í félagsskiptaglugganum sem opnaði í gær.
„ Við erum að hugsa um það, þetta voru svaka mörg áföll sem KA hafa verið að lenda í í sumar. Ég var ekki að taka það fram í viðtölum af því ég er ekki maður sem er að grenja eða væla yfir einhverju sem maður fær ekki breytt. En við erum að skoða okkur um og sjáum til hvað gerist á næstu dögum."

Athugasemdir