Angel Di Maria segist vera ánægður með að leika í treyju númer 7 hjá Manchester United.
Hann fetar þannig í fótspor leikmanna eins og George Best, Eric Cantona, David Beckham og Cristiano Ronaldo.
Hinn 26 ára gamli Di Maria var frábær í sigri Manchester United á QPR um helgina og hann segist staðráðinn í að standa sig vel í sjöunni.
,,Það er mjög gott að vera í þessu númeri," sagði Di Maria.
,,Margir stórir leikmenn hafa spilað í þessari treyju og ég ætla að gera allt sem ég get til að valda ekki vonbrigðum."
Athugasemdir