Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   þri 19. mars 2024 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sir Jim Ratcliffe: Hata öll þessi lið
Sir Jim Ratcliffe.
Sir Jim Ratcliffe.
Mynd: Getty Images
Titilbaráttan á Englandi hefur sjaldan verið eins spennandi en Arsenal, Manchester City og Liverpool eru að berjast um titilinn stóra.

Það má segja að þessi titilbarátta sé martröð fyrir Manchester United og stuðningsmenn þeirra því það er rígur á milli United og þessara þriggja liða. Þetta eru örugglega þau þrjú lið sem stuðningsmenn Man Utd kunna minnst við.

Sir Jim Ratcliffe, sem keypti nýverið 25 prósenta hlut í Man Utd, var nýverið í hlaðvarpi á Englandi þar sem hann var spurður út í það hvaða lið hann vildi helst að myndi vinna Englandsmeistaratitilinn á þessu tímabili.

„Ég hata þau öll," segir Ratcliffe en hann ólst upp sem stuðningsmaður United.

„Ég veit það ekki. Þau eru öll óvinurinn og ég get ekki valið á milli þeirra."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner