Nú stendur yfir viðureign Manchester City og Monaco í Meistaradeildinni og þegar þetta er skrifað er staðan 3-2 fyrir Monaco.
Í stöðunni 2-1 fyrir Monaco gat Radamel Falcao komið liðinu yfir úr vítaspyrnu en spyrna kappans var skelfileg og Caballero í marki Man. City varði auðveldlega.
Falcao hefur því klúðrað báðum vítaspyrnum sínum í Meistaradeildinni í vetur. Skömmu síðar jafnaði Sergio Aguero fyrir City en Falcao bætti þremur mínútum seinna fyrir mistökin með öðru marki sínu í kvöld.
Athugasemdir