Framherjinn Zlatan Ibrahimovic hefur skorað mörg glæsileg mörk á ferlinum, bæði fyrir PSG og sænska landsliðið.
Markið sem Zlatan skoraði í leik Svíþjóðar gegn Moldavíu í undankeppni EM 2016 í kvöld fellur þó ekki í þann flokk. Það er hins vegar afskaplega spaugilegt.
Moldavíu tókst að halda leiknum í 0-0 í fyrri hálfleik en strax á fyrstu mínútu þess síðari kom markið. Markvörður Moldavíu kom þá með hörmulega markspyrnu beint í hausinn á Zlatan, sem tókst að stýra boltanum í netið.
Hér að neðan má sjá þetta fyndna mark.

Athugasemdir