Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25098 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR18.08.2025, 10:35

Kalimuendo í Forest (Staðfest) - Stórar fjárhæðir síðustu daga

Nottingham Forest hefur varið miklum fjárhæðum í leikmannakaup síðustu daga. Það heldur áfram núna í morgunsárið því félagið hefur gengið frá kaupum á franska sóknarmanninum Arnaud Kalimuendo. Forest borgar um 25 milljónir punda til að kaupa Kalimuendo frá Rennes í Frakklandi.

FRÉTTIR17.08.2025, 12:30

Mukiele til Sunderland (Staðfest)

Franski varnarmaðurinn Nordi Mukiele er genginn til liðs við Sunderland frá Paris Saint-Germain fyrir 9,5 milljónir punda.

FRÉTTIR15.08.2025, 16:44

Giovanni Leoni til Liverpool (Staðfest)

Varnarmaðurinn ungi Giovanni Leoni er orðinn leikmaður Liverpool en félagið kaupir hann á 26 milljónir punda frá Parma og gæti sú upphæð hækkað eftir ákvæðum. Hann gerir sex ára samning. Leoni er 18 ára gamall miðvörður og er talið að hann verði í næsta landsliðshópi Ítalíu. Hann á sjö landsleiki fyrir U19 lið þjóðarinnar. Hann vakti mikla athygli á síðasta tímabili með Parma í ítölsku A-deildinni, spilaði 17 leiki og skoraði eitt mark. Hann var áður hjá Padova og Sampdoria. <i>„Ég er mjög ánægður og stoltur af því að vera hérna. Ég var alveg upp með mér þegar ég heyrði af áhuga Liverpool,"</i> segir Leoni. <i>„Ég horfi á leikinn gegn Bournemouth í kvöld úr stúkunni og eftir leikinn hefst nýr kafli hjá mér."</i>

FRÉTTIR15.08.2025, 15:30

Sonur fyrrum landsliðskonu í Leikni (Staðfest)

Á gluggadeginum fékk Leiknir Jónatan Ari Bragason í sínar raðir. Hann fékk félagaskipti frá Danmörku. Hann var skráður í lið AB Tårnby sem spilar í neðri deildum Danmerkur. Hann hafði verið á reynslu hjá Jóa Kalla og félögum í AB Kaupmannahöfn síðasta sumar, en fékk ekki samning. Hann er stór og stæðilegur miðvörður sem er fæddur árið 2006. Hann er fluttur er til Íslands og er mættur í Leikni. Hann er sonur fyrrum landsliðskonunnar Erlu Hendriksdóttur sem lék á sínum tíma 55 A-landsleiki og skoraði í þeim fjögur mörk.

FRÉTTIR15.08.2025, 15:00

FH fékk leikmann á gluggadeginum (Staðfest)

Kvennalið FH bætti við sig einum leikmanni rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði. Alexa Ariel Bolton samdi við félagið rétt áður en glugginn lokaði og kemur til með að spila með FH út tímabilið.

FRÉTTIR15.08.2025, 12:28

Calvert-Lewin til Leeds (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin verður formlega orðinn leikmaður Leeds United í dag en Daniel Farke, stjóri Leeds, staðfesti þetta á fréttamannafundi rétt í þessu. Greint var frá því í vikunni að Calvert-Lewin væri á leið í læknisskoðun hjá Leeds og nú er allt frágengið. <i>„Hann mun styrkja okkur. Við erum allir hæstánægðir með að hann muni klæðast treyju Leeds,"</I> segir Farke.

FRÉTTIR15.08.2025, 06:00

Broadhead kominn til Wrexham fyrir metfé (Staðfest)

Nathan Broadhead er genginn til liðs við Wrexham fyrir metfé. Hollywood leikararnir, Ryan Reynolds og Rob McElhenny, eigendur Wrexham, eru svo sannarlega búnir að leggja mikið í félagið en Broadhead var keyptur fyrir metfé.

FRÉTTIR14.08.2025, 23:30

Lengjudeild kvenna: ÍBV upp í Bestu deildina (Staðfest)

ÍBV tryggði sér sæti í Bestu deildinni á næstu leiktíð í kvöld þegar liðið vann Keflavík á útivelli. Allison Grace Lowrey var hetja liðsins en hún skoraði bæði mörkin. ÍBV er með ellefu stiga forystu á Grindavík/Njarðvík sem situr í 3. sæti þegar níu stig eru eftir í pottinum. ÍBV hefur náð ótrúlegum árangri en liðið hefur aðeins gert eitt jafntefli og tapað einum leik á tímabilinu. Emma Nicole Phillips skoraði þrennu fyrir Grindavík/Njarðvík í sigri gegn KR. Sex stigum munar á HK, Grindavík/Njarðvík og Gróttu í 2.-4. sæti en öll liðin hrósuðu sigrum í kvöld. Þá vann Afturelding kærkominn sigur í fallbaráttuslag gegn Fylki en liðin eru í mjög vondri stöðu.

FRÉTTIR14.08.2025, 08:20

Axel Witsel til Girona (Staðfest)

Belgíski reynsluboltinn Axel Witsel er búinn að skrifa undir eins árs samning við Girona í efstu deild spænska boltans. Það er möguleiki á framlengingu um auka ár ef ákveðnum skilyrðum verður mætt.

FRÉTTIR14.08.2025, 08:00

De Winter valdi Milan (Staðfest)

Belgíski varnarmaðurinn Koni De Winter er búinn að velja AC Milan sem næsta áfangastað þrátt fyrir mikinn áhuga úr ensku úrvalsdeildinni.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.