Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25098 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR13.08.2025, 14:04

Eyrún Embla í topplið Svíþjóðar (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði komist að samkomulagi við sænska félagið BK Häcken um félagaskipti Eyrúnar Emblu Hjarardóttur. Eyrún Embla gengur í raðir sænska stórliðsins eftir fimm ár hjá Stjörnunni. Hún kom frá Snæfellsnesi fyrir tímabilið 2021.

FRÉTTIR13.08.2025, 12:09

Bakvörður með yfir 100 leiki í Eredivisie kominn í Stjörnuna (Staðfest)

Damil Dankerlui er genginn í raðir Stjörnunnar, hann er þriðji leikmaðurinn sem Stjarnan tilkynnir í dag, á þessum lokadegi félagaskiptagluggans. Damil er 28 ára hægri bakvörður sem á 135 leiki í efstu deild Hollands, Eredivisie. Þar lék hann með Ajax, Willem II og Groningen. Hann hefur einnig spilað í Grikklandi og síðast lék hann með Almere í hollensku B-deildinni. Í tilkynningu Stjörnunnar er Damil lýst sem hröðum og öflugum varnarmanni með mikla reynslu gegn sterkustu sóknarmönnum Hollands.

FRÉTTIR13.08.2025, 11:40

Stjarnan fær tvo landsliðsmenn Síerra Leóne (Staðfest)

Stjarnan ætlar sér samkvæmt heimildum Fótbolta.net að styrkja sig fyrir gluggalok, þétta raðirnar fyrir endasprettinn í Bestu deildinni. Líklega eru tveir landsliðsmenn Síerra Leóne á leið í Garðabæinn. Blaðamaðurinn Petros Katta, sem fjallar um fótbolta og fótboltamenn með tengingu við Síerra Leóne, birti í gær færslu um að tveir landsliðsmenn Síerra Leóne væru orðaðir við Stjörnuna. <b>Uppfært 11:40:</b> Stjarnan hefur tilkynnt um komu leikmannanna tveggja.

FRÉTTIR13.08.2025, 10:30

Diakite til Bournemouth (Staðfest)

Bournemouth hefur gengið frá kaupum á franska miðverðinum Bafode Diakite frá Lille fyrir 34,6 milljónir punda. Þessi 24 ára leikmaður kostar 30,3 milljónir punda og gæti það verð hækkað um 4,3 milljónir punda eftir ákvæðum. Hann er því næst dýrasti leikmaður í sögu Bournemouth. Hann lék 31 leik í frönsku deildinni á síðasta tímabili þegar Lille hafnaði í fimmta sæti. Þar lék hann með íslenska landsliðsmanninum Hákoni Arnari Haraldssyni.

FRÉTTIR13.08.2025, 10:23

Binni Hlö heim í Leikni (Staðfest)

Brynjar Hlöðvers hefur fengið félagaskipti heim í Leikni eftir að hafa leikið með KFK í 3. deildinni fyrri hluta sumars og á síðasta tímabili. Binni er uppalinn í Leikni og hafði fyrir árið í fyrra einungis leikið með Leikni og venslafélaginu KB á Íslandi. Hann er fæddur árið 1989 og var árið 2014 hluti af liði Leiknis sem vann 1. deildina og lék með liðinu í efstu deild 2015. Hann fór svo aftur upp með liðinu 2020 og lék í efstu deild 2021 og 2022.

FRÉTTIR13.08.2025, 08:30

Vlachodimos til Sevilla (Staðfest)

Gríski markvörðurinn Odysseas Vlachodimos er mættur til Sevilla á láni frá Newcastle United út tímabilið.

FRÉTTIR13.08.2025, 06:00

Morata loksins kominn til Como (Staðfest)

Spænski framherjinn Alvaro Morata hefur loksins fengið félagaskipti sín til Como í gegn, tveimur mánuðum eftir að hafa náð samkomulagi við félagið.

FRÉTTIR12.08.2025, 19:34

Aron Skúli í Leikni (Staðfest)

Framherjinn Aron Skúli Brynjarsson er mættur til Leiknis frá Augnabliki en hann gerir samning út tímabilið.

FRÉTTIR12.08.2025, 15:41

Grealish til Everton á láni (Staðfest)

Jack Grealish er kominn til Everton á lánssamningi frá Manchester City út komandi tímabil. Þessi 29 ára leikmaður er sjötti leikmaðurinn sem Everton fær til sín í sumar; á eftir Kiernan Dewsbury-Hall, Charly Alcaraz, Thierno Barry, Mark Travers og Adam Aznou.

FRÉTTIR12.08.2025, 13:24

Erlendur varnarmaður í KR (Staðfest)

KR hefur kynnt nýjan leikmann en um er að ræða Michael Akoto, varnarmann sem var hjá AGF í Danmörku. Mikil umræða hefur verið um þörf KR á að styrkja varnarleik sinn en liðið hefur fengið á sig 41 mark og er markatölunni frá því að vera í fallsæti í Bestu deildinni. Akoto fæddist í Gana en er með þýskan ríkisborgararétt. Hann lék í Þýskalandi og var hjá Dynamo Dresden áður en hann hélt til AGF. Á síðasta tímabili lék hann sex leiki í dönsku úrvalsdeildinni en var mikið á meiðslalistanum. Carsten V. Jensen íþróttastjóri AGF sagði þegar leiðir skildu að Akoto væri klárlega öflugur varnarmaður þó vera hans hjá félaginu hafi ekki orðið eins og óskað væri eftir. Hann spilaði 57 leiki og skoraði tvö mörk í B- og C-deild Þýskalands með Dynamo Dresden. Næsti leikur KR er útileikur gegn Fram á mánudagskvöld. Fyrr í glugganum hefur KR fengið Amin Cosic frá Njarðvík, Arnar Frey Ólafsson frá HK, Orra Hrafn Kjartansson frá Val og Galdur Guðmundsson frá Horsens.

FRÉTTIR12.08.2025, 11:00

Illia Zabarnyi til PSG (Staðfest)

Evrópumeistararnir í PSG staðfestu í morgun að varnarmaðurinn Illia Zabarnyi væri kominn til félagsins frá Bournemouth. Hann er keyptur á 63 milljónir evra og gæti verðið hækkað um 3 milljónir til viðbótar. Þessi 22 ára úkraínski miðvörður gerði fimm ára samning við PSG. Hann lék 36 leiki fyrir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og vakti athygli fyrir vasklega framgöngu. Zabarnyi er þriðji varnarmaðurinn sem Bournemouth selur fyrir háar fjárhæðir í sumar. Dean Huijsen var seldur til Real Madrid fyrir 50 milljónir punda og Milos Kerkez til Liverpool á 40 milljónir.

FRÉTTIR12.08.2025, 10:52

Ingibjörg seld til Freiburg (Staðfest)

Landsliðsmiðvörðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir er gengin í raðir þýska félagsins Freiburg. Hún yfirgefur Bröndby óvænt og skrifar undir samning við Freiburg sem endaði í fimmta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.