Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "lið vikunnar í enska" í fyrirsögn og texta skilaði 428 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR11.04.2022, 11:30

Lið vikunnar í enska - Tveir úr Liverpool en enginn úr Man City

Topplið ensku deildarinnar mættust á Etihad leikvanginum í gær og varð jafntefli niðurstaðan í leiknum. Chelsea valtaði yfir Southampton og var Tottenham eina liðið í baráttunni um Meistaradeildarsæti sem stóð í lappirnar. Arsenal, Man Utd, West Ham og Wolves töpuðu öll. Everton lagði Man Utd að velli og fjarlægðist fallsætin og degi seinna vann Norwich gegn Burnley þar sem Burnley þurfti á stigunum að halda.

FRÉTTIR04.04.2022, 09:35

Lið vikunnar í enska - Gomez og Sterling í liðinu

Baráttan um enska meistaratitilinn harðnaði um helgina þegar Manchester City vann Burnley og Liverpool vann Watford. Tottenham pakkaði Newcastle saman 5-1, Brentford vann óvæntan 4-1 sigur gegn Chelsea og Manchester United gerði 1-1 jafntefli við Leicester á Old Trafford.

FRÉTTIR14.03.2022, 09:45

Lið vikunnar í enska - Ronaldo og Díaz saman frammi

Liverpool setti aukna pressu á Manchester City í titilbaráttunni með því að vinna Brighton, Cristiano Ronaldo var magnaður í sigri Manchester United gegn Tottenham og Leeds United vann mikilvægan og dramarískan sigur í fallbaráttunni. Þetta var tíðindamikil helgi í ensku úrvalsdeildinni. Everton og Burnley töpuðu bæði og hættan á falli eykst. Chelsea vann nauman sigur við erfiðar aðstæður og Úkraínumaðurinn Andriy Yarmolenko hirti fyrirsagnir með því að skora í sigri West Ham.

FRÉTTIR07.03.2022, 09:30

Lið vikunnar í enska - Samtals sex frá Man City og Chelsea

Manchester City svaraði sigri Liverpool með því að rúlla yfir erkifjendurna í Manchester United í gær. Pep Guardiola og lærisveinar unnu 4-1 og eru með sex stiga forystu á Jurgen Klopp og hans sveit sem unnu Hamranna 1-0. Arsenal vann Watford 3-2 og komst í fjórða sætið. Chelsea, sem er í þriðja sæti, rúllaði yfir Burnley í seinni hálfleik.

FRÉTTIR28.02.2022, 10:45

Lið vikunnar í enska - Kelleher og tveir aðrir frá Liverpool

Liverpool vann dramatískan sigur í vítaspyrnukeppni gegn Chelsea í úrslitaleik deildabikarsins á Wembley í gær. Á laugardaginn vann Manchester City mikilvægan 1-0 sigur gegn Everton og náði sex stiga forystu í úrvalsdeildinni. Marcelo Bielsa var rekinn frá Leeds eftir 4-0 tap á heimavelli gegn Tottenham en Newcastle vann 2-0 sigur gegn Brentford og kom sér í betri mál. West Ham vann Wolves, Aston Villa sigraði Brighton en Manchester United náði ekki að skora gegn fallbaráttuliði Watford. Markalaust jafntefli þar. Leikur Crystal Palace og Burnley endaði með 1-1 jafntefli. Garth Crooks hjá BBC hefur valið úrvalslið vikunnar.

FRÉTTIR21.02.2022, 09:40

Lið vikunnar í enska - Kane og Son saman frammi

Liverpool átti frábæra helgi. Liðið þurfti svo sannarlega að hafa fyrir því að vinna Norwich en liðið komst nær Manchester City sem tapaði á heimavelli gegn Tottenham. Það voru áhugaverðustu úrslit helgarinnar. Manchester United vann Leeds, Watford vann Aston Villa og Southampton vann Everton. Chelsea neitar að játa sig sigrað í titilbaráttunni, Newcastle gerði jafntefli gegn West Ham og skyndilega var markaflóð hjá Burnley.

FRÉTTIR14.02.2022, 13:00

Lið vikunnar í enska - Fullkomin þrenna

Það er ekki bara horft til ensku úrvalsdeildarinna í liði vikunnar heldur einnig í HM félagsliða þar sem Chelsea bar sigur úr býtum í framlengdum úrslitaleik gegn Palmeiras. Manchester City er áfram með níu stiga forystu. Liðið vann Norwich 4-0 á laugardag og sólarhring síðar lagði Liverpool botnlið Burnley 1-0. Manchester United og West Ham misstigu sig í baráttunni um fjórða sætið. Rauðu djöflarnir gerðu 1-1 jafntefli gegn Southampton og West Ham gerði 2-2 jafntefli gegn Leicester.

FRÉTTIR24.01.2022, 11:00

Lið vikunnar í enska - Alisson í marki og Rashford fremstur

Manchester City gerði jafntefli gegn Southampton og Liverpool náði að saxa á forskotið með því að vinna Crystal Palace. Chelsea vann Tottenham í Lundúnaslag, Arsenal gerði markalaust jafntefli gegn Burnley og Leicester gerði 1-1 jafntefli gegn Brighton. Í fallbaráttunni vann Newcastle mikilvægan sigur gegn Leeds og Norwich vann 3-0 gegn Watford. Everton heldur áfram í vandræðum en liðið tapaði gegn Aston Villa. Flautumark færði Manchester United 1-0 sigur gegn West Ham á Old Trafford og Wolves vann Brentford 2-1. Garth Crooks hjá BBC er búinn að velja úrvalslið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni.

FRÉTTIR17.01.2022, 10:40

Lið vikunnar í enska - Coutinho í góðum félagsskap

Manchester City vann 1-0 sigur gegn Chelsea og er með ellefu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir helgina. Liverpool vann 3-0 sigur gegn Brentford og kom sér upp í annað sætið. Astton Villa kom til baka gegn Manchester United og gerði 2-2 jafntefli, Úlfarnir unnu Southampton 3-1 og Rafa Benítez var rekinn eftir 2-1 tap Everton gegn Norwich.

FRÉTTIR04.01.2022, 09:45

Lið vikunnar í enska - Tveir úr Chelsea og tveir úr Liverpool

Jólatörnin reyndist góð fyrir Manchester City sem er með tíu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. City vann 3-2 sigur gegn Arsenal en keppinautarnir í Chelsea og Liverpool gerðu 2-2 jafntefli í stórskemmtilegum leik. Manchester United tapaði 1-0 fyrir Úlfunum í gær, Leeds kom sér átta stigum frá fallsvæðinu með sigri á Burnley og vandræði Everton halda áfram með 3-2 tapi gegn Brighton. Brentford vann 2-1 endurkomusigur gegn Aston Villa, Tottenham skoraði flautumark og vann Watford 1-0 og West Ham sigraði Crystal Palace 3-2.

FRÉTTIR12.12.2021, 22:55

Lið vikunnar í enska - De Gea í markinu og Salah frammi

Topplið Manchester City vann Wolves 1-0 um helgina en öll toppliðin unnu. Chelsea vann dramatískan 3-2 gegn Leeds með sigurmarki í uppbótartíma og Liverpool vann 1-0 sigur á Aston Villa í endurkomu Steven Gerrard á Anfield.

FRÉTTIR06.12.2021, 08:50

Lið vikunnar í enska - Fred og Origi í liðinu

Manchester City nýtti sér það að West Ham vann Chelsea 3-2 og kom sér á topp deildarinnar með öruggum 3-1 sigri á Watford. Divock Origi skoraði sigurmark Liverpool gegn Úlfunum. Newcastle vann fyrsta deildarsigur sinn á tímabilinu með því að leggja Burnley 1-0 og Brighton jafnaði á 98. mínútu gegn Southampton. Tottenham klifraði upp í fimmta sæti með 3-0 sigri gegn Norwich, Ralf Rangnick fagnaði sigri í fyrsta leik með Manchester United sem vann 1-0 gegn Crystal Palace og Patrick Bamford mætti af meiðslalistanum og tryggði Leeds stig gegn Brentford með dramatísku sigurmarki. Þá vann Aston Villa 2-1 endurkomusigur gegn Leicester.

FRÉTTIR29.11.2021, 08:05

Lið vikunnar í enska - Fjórir fulltrúar Liverpool

Chelsea og Manchester United skiptu stigunum á milli sín 1-1, Manchester City vann West Ham 2-1 í snjóbolta og Liverpool rúllaði yfir Southampton 4-0. Arsenal vann botnlið Newcastle 2-0, Aston Villa hefur unnið báða leikina undir stjórn Steven Gerrard og lagði Crystal Palace á laugardag 2-1 og Leicester vann Watford 4-2 í skemmtilegum leik. Brentford vann langþráðan sigur gegn Everton en markalaust var í Norwich - Wolves og Brighton - Leeds. Þá var leik Leeds og Tottenham frestað vegna snjókomu.

FRÉTTIR22.11.2021, 09:30

Lið vikunnar í enska - Sterling og Mane í sóknarlínunni

Landsleikjaglugginn er að baki og enska úrvalsdeildin farin á fulla ferð að nýju. Manchester United rak Ole Gunnar Solskjær eftir 4-1 tap gegn Watford. Chelsea er á toppnum en liðið vann sannfærandi 3-0 sigur gegn Leicester en Manchester City vann Everton með sama mun.

FRÉTTIR08.11.2021, 09:30

Lið vikunnar í enska - Fjórir frá Man City

Sigrar Manchester City og West Ham minnkuðu forskot Chelsea á toppnum eftir að Chelsea gerði jafntefli við Burnley á laugardag. Englandsmeistarar City unnu sannfærandi sigur á erkifjendunum í Manchester United 2-0 en West Ham fór upp í þriðja sæti með því að vinna Liverpool 3-2. Botnlið Norwich vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Brentford, Arsenal hífði sig upp í fimmta sæti með sigri gegn Watford og Tottenham gerði markalaust jafntefli við Everton í fyrsta deildarleik Antonio Conte. Southampton og Crystal Palace unnu sigra en Leeds - Leicester og Brighton - Newcastle enduðu með jafntefli.

FRÉTTIR01.11.2021, 08:00

Lið vikunnar í enska - Þrír frá Man Utd og þrír frá Palace

Þetta var helgi þar sem Chelsea styrkti stöðu sína á toppnum, Manchester United setti mikla pressu á Nuno Espirito Santo, Crystal Palace vann óvæntan sigur gegn Manchester City og Burnley vann fyrsta leik sinn á tímabilinu. Garth Crooks, sérfræðingur BBC, velur úrvalslið vikunnar.

FRÉTTIR25.10.2021, 09:45

Lið vikunnar í enska - Fimm úr Liverpool

Liverpool jók pressuna á Mancheter United og Ole Gunnar Solskjær með því að vinna 5-0 stórsigur á Old Trafford í gær. Chelsea slátraði Norwich 7-0, Manchester City vann Brighton 4-1 og West Ham stimplaði sig inn í Meistaradeildarbaráttu með 1-0 sigri gegn Tottenham. Watford kom Everton á óvart með 5-2 sigri á Goodison Park en Arsenal vann Aston Villa 3-1 á föstudagskvöld.

FRÉTTIR19.10.2021, 12:10

Lið vikunnar í enska - Salah, Kane og Firmino

Enska úrvalsdeildin fór af stað með hvelli eftir landsleikjahlé og er lið vikunnar að þessu sinni sótt í smiðju <i>Mirror</i>. Liverpool rúllaði yfir Watford en Manchester United tapaði gegn Leicester. Manchester City og Chelsea fögnuðu sigrum gegn Burnley og Brentford. Það er Húsasmiðjan sem færir þér lið vikunnar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.