Lið vikunnar í enska - Kelleher og tveir aðrir frá Liverpool

Marcelo Bielsa var rekinn frá Leeds eftir 4-0 tap á heimavelli gegn Tottenham en Newcastle vann 2-0 sigur gegn Brentford og kom sér í betri mál.
West Ham vann Wolves, Aston Villa sigraði Brighton en Manchester United náði ekki að skora gegn fallbaráttuliði Watford. Markalaust jafntefli þar. Leikur Crystal Palace og Burnley endaði með 1-1 jafntefli.
Garth Crooks hjá BBC hefur valið úrvalslið vikunnar.

Markvörður: Caoimhin Kelleher (Liverpool) - Var geggjaður í úrslitaleiknum og þó hann hafi ekki varið í vítakeppninni þá skoraði hann sigurmarkið þar. Besti varamarkvörður heims segir Jurgen Klopp.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Matty Cash (Aston Villa) - Skoraði og sýndi skilaboð til liðsfélaga síns með Póllandi, Tomasz Kedziora sem spilar fyrir Dinamo Kiev og er fastur í úkraínsku höfuðborginni.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Herra áreiðanlegur var svakalega öflugur í úrslitaleiknum og vann hvert einvígið á fætur öðru.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Fabian Schar (Newcastle) - Norðanmenn héldu hreinu og Schar átti frábæran leik, var með stoðsendingu í leiknum.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Matt Doherty (Tottenham) - Skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham og átti einnig stoðsendingu í leiknum.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Joelinton (Newcastle) - Skoraði um helgina og heldur áfram að blómstra á miðjunni hjá Newcastle.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Joe Willock (Newcastle) - Hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar á tímabilinu en gegn Brentford fann hann sig vel og skoraði.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Dejan Kulusevski (Tottenham) - Smellpassar í lið Tottenham og skoraði eitt af mörkunum gegn Leeds.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Luis Díaz (Liverpool) - Kólumbíumaðurinn passar frábærlega í lið Liverpool og var sífellt ógnandi í úrslitaleik deildabikarsins.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Phil Foden (Manchester City) - Hetjan gegn Everton, skoraði eina mark leiksins.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Harry Kane (Tottenham) - Kláraði færið afskaplega vel þegar hann skoraði gegn Leeds. Átti líka frábæra stoðsendingu.

Mynd: EPA


Mynd: BBC



