Lið vikunnar í enska - Fjórir frá Man City

Botnlið Norwich vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Brentford, Arsenal hífði sig upp í fimmta sæti með sigri gegn Watford og Tottenham gerði markalaust jafntefli við Everton í fyrsta deildarleik Antonio Conte. Southampton og Crystal Palace unnu sigra en Leeds - Leicester og Brighton - Newcastle enduðu með jafntefli.

Markvörður: Tim Krul (Norwich City) - Þessi reynslumikli markvörður hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu en var í stuði gegn Brentford.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Joao Cancelo (Manchester City) - Frábær gegn United og átti stórhættulegar sendingar inn í teiginn.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Ruben Dias (Manchester City) - Steig ekki feilspor á Old Trafford.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Kurt Zouma (West Ham) - Skoraði með geggjuðum skalla í fræknum sigri gegn Liverpool.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Bernardo Silva (Manchester City) - Hefur leikið afskaplega vel á tímabilinu og var hjartað í því sem City gerði um helgina. Skoraði seinna markið í 2-0 sigri.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Rodri (Manchester City) - Fær ekki oft hrósið en vinnur gríðarlega mikilvæga vinnu á miðju City.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Mathias Normann (Norwich City) - Var framúrskarandi um helgina og skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Emile Smith Rowe (Arsenal) - Heldur áfram að vera á eldi. Skoraði sigurmarkið gegn Watford og Arsenal heldur áfram á flottu skriði.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Raphinha (Leeds United) - Skoraði í jafntefli gegn Leicester. Hversu lengi getur Leeds haldið Brassanum? Hann á heima í Meistaradeildinni.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Pablo Fornals (West Ham) - Hefur skorað þrjú mörk í fimm leikjum gegn Liverpool. Bjó til vandræði fyrir vörn liðsins trekk í trekk í gær.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Harvey Barnes (Leicester City) - Skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark síðan í febrúar.

Mynd: Getty Images


Mynd: BBC



