Fotbolti.net
25.10.21 - 09:45
Elvar Geir Magnússon

Lið vikunnar í enska - Fimm úr Liverpool

Mohamed Salah fékk að eiga boltann.

Mohamed Salah fékk að eiga boltann.

Canon

Mynd: Getty Images

Húsasmiðjan
Liverpool jók pressuna á Mancheter United og Ole Gunnar Solskjær með því að vinna 5-0 stórsigur á Old Trafford í gær.

Chelsea slátraði Norwich 7-0, Manchester City vann Brighton 4-1 og West Ham stimplaði sig inn í Meistaradeildarbaráttu með 1-0 sigri gegn Tottenham.

Watford kom Everton á óvart með 5-2 sigri á Goodison Park en Arsenal vann Aston Villa 3-1 á föstudagskvöld.
Þá gerði Southampton 2-2 jafntefli við Burnley og 1-1 varð niðurstaðan í Leeds - Wolves og einnig í leik Crystal Palace og Newcastle.

Garth Crooks, eða 'hinn umdeildi' eins og við köllum hann á skrifstofu Fótbolta.net, er búinn að setja saman úrvalslið vikunnar fyrir BBC.
Markvörður: Alisson (Liverpool) - Hefur haldið hreinu í sjö af síðustu tíu deildarleikjum.

Markvörður: Alisson (Liverpool) - Hefur haldið hreinu í sjö af síðustu tíu deildarleikjum.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Reece James (Chelsea) - Tvö mörk og tvær stoðsendingar í fjórum byrjunarliðsleikjum. Chelsea akademían að skila.

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Þetta var eins og hver annar dagur á skrifstofunni hjá hollenska varnarmanninum!

Varnarmaður: Ibrahima Konate (Liverpool) - Franski varnarmaðurinn sem kom frá RB Leipzig í sumar smellpassar í lið Liverpool.

Varnarmaður: Ben Chilwell (Chelsea) - Bakvörðurinn skoraði sitt fjórða mark í fjórum leikjum gegn Norwich!

Mynd: EPA

Miðjumaður: Naby Keita (Liverpool) - Miðja Liverpool át miðju United með húð og hári. Mark og stoðsending frá Keita.

Miðjumaður: Naby Keita (Liverpool) - Miðja Liverpool át miðju United með húð og hári. Mark og stoðsending frá Keita.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Mason Mount (Chelsea) - Varð 20. leikmaðurinn til að skora þrennu fyrir Chelsea.

Miðjumaður: Bernardo Silva (Man City) - Hefur verið helsti drifkrafturinn í sóknarleik Manchester City á tímabilinu.

Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - Óstöðvandi. Þrenna á Old Trafford. Fyrsti andstæðingur United til að skora þrennu á vellinum síðan  Dennis Bailey gerði það í janúar 1992, fyrir QPR.

Sóknarmaður: Joshua King (Watford) - Watford átti stórkostlega endurkomu gegn Everton og Kóngurinn skoraði þrennu gegn sínu fyrrum félagi.

Sóknarmaður: Phil Foden (Man City) - Tvö mörk og ein stoðsending gegn Brighton. Í fyrsta sinn sem hann kemur með beinum hætti að þremur mörkum í leik.

Sóknarmaður: Phil Foden (Man City) - Tvö mörk og ein stoðsending gegn Brighton. Í fyrsta sinn sem hann kemur með beinum hætti að þremur mörkum í leik.

Canon

Mynd: Getty Images

Lið vikunnar í enska - Fimm úr Liverpool
Canon

Mynd: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.