Lið vikunnar í enska - De Gea í markinu og Salah frammi


Mynd: BBC


Mynd: BBC

Leicester rúllaði yfir Newcastle 4-0, Arsenal vann sannfærandi 3-0 sigur gegn Southampton og Crystal Palace vann 3-1 gegn Everton.
Umferðin hófst á föstudagskvöld þar sem Brentford skoraði tvö mörk í lokin og vann Watford 2-1.
Garth Crooks hjá BBC velur úrvalslið umferðarinnar.

Markvörður: David de Gea (Manchester United) - Án hans mögnuðu frammistöðu hefði United ekki unnið um helgina.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Gabriel (Arsenal) - Var á meðal markaskorara Arsenal á laugardaginn.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Hjálpaði til í því að Aston Villa átti ekki skot á markið í leiknum.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Antonio Rudiger (Chelsea) - Nældi í tvær vítaspyrnur. Leikmaður sem Chelsea má ekki missa.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Conor Gallagher (Crystal Palace) - Lánsmaðurinn frá Chelsea heldur áfram að fara á kostum. Skoraði stórkostlegt mark gegn Everton.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Jorginho (Chelsea) - Skoraði faglega af vítapunktinum í tvígang.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Youri Tielemans (Leicester City) - Tvö mörk og yfir heildina frábær frammistaða Belgans.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: James Maddison (Leicester City) - Geggjuð frammistaða gegn Newcastle. Skoraði eitt mark og kom að öllum hinum. Svakalegur sköpunarmáttur.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - Egyptinn heldur áfram að skora. Mörkin af vítapunktinum telja eins og hin!

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Raheem Sterling (Manchester City) - Skoraði sitt hundraðasta úrvalsdeildarmark.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Bryan Mbeumo (Brentford) - Sýndi stáltaugar þegar hann skoraði sigurmarkið úr víti á 95. mínútu.

Mynd: EPA



