Lið vikunnar í enska - Tveir úr Chelsea og tveir úr Liverpool


Mynd: BBC


Mynd: BBC

Manchester United tapaði 1-0 fyrir Úlfunum í gær, Leeds kom sér átta stigum frá fallsvæðinu með sigri á Burnley og vandræði Everton halda áfram með 3-2 tapi gegn Brighton.
Brentford vann 2-1 endurkomusigur gegn Aston Villa, Tottenham skoraði flautumark og vann Watford 1-0 og West Ham sigraði Crystal Palace 3-2.

Markvörður: Jose Sa (Wolves) - Hélt hreinu í öflugum sigri gegn Rauðu djöflunum.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Davinson Sanchez (Tottenham) - Hetja Spurs, skoraði sigurmarkið djúpt í uppbótartíma.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Conor Coady (Wolves) - Fyrirliðinn var ákaflega öflugur á Old Trafford.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Nathan Ake (Man City) - Bjargaði frábærlega á línu í sigrinum gegn Arsenal.

Mynd: EPA

Miðjumaður: N'Golo Kante (Chelsea) - Geggjuð frammistaða gegn Liverpool.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Alexis Mac Allister (Brighton) - Brighton skorar ekki mikið en gerði þrjú á útivelli gegn Everton og Mac Allister var með tvö af þeim mörkum.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Mateo Kovacic (Chelsea) - Frábær á miðjunni og skoraði stórglæsilegt mark.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Manuel Lanzini (West Ham) - Talandi um glæsileg mörk! Lanzini var maður leiksins gegn Palace.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - Heldur áfram að spila frábærlega og sem sannur liðsmaður.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Yoane Wissa (Brentford) - Skoraði í frábærum sigri gegn Aston Villa. Brentford heldur áfram að safna stigum.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Sadio Mane (Liverpool) - Slapp við rautt spjald og hélt upp á það með því að koma Liverpool yfir gegn Chelsea.

Mynd: EPA



