Lið vikunnar í enska - Fullkomin þrenna


Mynd: BBC


Mynd: BBC
Manchester City er áfram með níu stiga forystu. Liðið vann Norwich 4-0 á laugardag og sólarhring síðar lagði Liverpool botnlið Burnley 1-0.
Manchester United og West Ham misstigu sig í baráttunni um fjórða sætið. Rauðu djöflarnir gerðu 1-1 jafntefli gegn Southampton og West Ham gerði 2-2 jafntefli gegn Leicester.
Brighton lagði Watford 2-0 og markalaust jafntefli varð niðurstaðan i leik Brentford og Crystal Palace.
Garth Crooks, hinn mikli toppmaður, velur úrvalslið vikunnar fyrir BBC.

Markvörður: Jose Sa (Wolves) - Varnarframmistaða Wolves var til fyrirmyndar.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Seamus Coleman (Everton) - Everton sýndi frábæra frammistöðu gegn Leeds og Coleman skoraði fyrsta markið.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Ruben Dias (Manchester City) - Frábær varnarlega og átti auk þess stoðsendingu.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Michael Keane (Everton) - Skoraði og var frábær varnarlega.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Dan Burn (Newcastle) - Átti frábæra frumraun í vörn Newcastle.

Mynd: EPA

Miðjumaður: James Ward-Prowse (Southampton) - Átti framúrskarandi leik fyrir Southampton sem gerði jafntefli gegn Manchester United.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Fabinho (Liverpool) - Skoraði sigurmarkið gegn Burnley.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Declan Rice (West Ham) - Rosalegur drifkraftur.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Che Adams (Southampton) - Skoraði frábært jöfnunarmark gegn Manchester United.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Romelu Lukaku (Chelsea) - Var frábær þegar Chelsea vann HM félagsliða í fyrsta sinn.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Raheem Sterling (Manchester City) - Skoraði hina fullkomnu þrennu, hægri, vinstri, skalli.

Mynd: EPA



