Lið vikunnar í enska - Fjórir frá Man City en enginn frá Tottenham

Lið vikunnar hjá BBC

Mynd: BBC

Lið vikunnar hjá BBC

Mynd: BBC

Fjórir leikmenn Manchester City eru í liðinu og þá eru tveir frá Liverpool. Enginn leikmaður er frá Tottenham Hotspur sem náði í stig gegn Liverpool.
Það er Garth Crooks hjá BBC sem velur lið vikunnar.

Markvörður: Jordan Pickford (Everton) - Átti magnaða frammistöðu gegn Chelsea í vikunni. Valið stóð á milli hans og Alisson, áður en brasilíski markvörðurinn gerði klaufaleg mistök í jöfnunarmarki Tottenham.

Mynd: EPA

Hægri bakvörður: Trent Alexander-Arnold (Liverpool) - Verið gríðarlega stöðugur á þessari leiktíð og skoraði með þrumufleyg gegn Newcastle.

Mynd: EPA

Miðvörður: Ruben Dias (Man City) - Skoraði fyrsta mark liðsins og verið klettur í vörn Englandsmeistarana.

Mynd: EPA

Miðvörður: Romain Saiss (Wolves) - Verið ótrúlegur í hjarta varnarinnar hjá Úlfunum og gerði gott betur og skoraði gegn Brighton í miðri viku.

Mynd: EPA

Vinstri bakvörður: Andy Robertson (Liverpool) - Skoraði og lagði upp gegn Tottenham áður en hann var rekinn af velli.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Kevin de Bruyne (Man CIty) - Einn besti og ef ekki besti miðjumaður deildarinnar kominn á stjá. Skoraði tvö gegn Leeds í 7-0 sigri og virðist vera búinn að jafna sig af covid.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Joao Cancelo (Man CIty) - Portúgalski bakvörðurinn búinn að vera einn af bestu mönnum deildarinnar á þessari leiktíð. Skoraði frábært mark gegn Newcastle og lagði upp annað.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Bukayo Saka (Arsenal) - Saka var yfirburðarmaður gegn West Ham og svo aftur gegn Leeds um helgina. Stöðugasti leikmaður Arsenal síðasta eina og hálfa árið.

Mynd: EPA

Framherji: Gabriel Martinelli (Arsenal) - Brasilíumaðurinn er heitur þessa stundina. Skoraði eitt gegn West Ham og tvö gegn Leeds. Með mikið sjálfstraust fyrir framan markið.

Mynd: EPA

Framherji: Phil Foden (Man City) - Hver frábæra frammistaðan á fætur annarri. Mikilvægur hlekkur í óstöðvandi liði Man City.

Mynd: Getty Images

Framherji: Jacob Ramsey (Aston Villa) - Var virkilega flottur í 2-0 sigrinum á Norwich. Skoraði fyrra markið og virðist vera með mikil gæði.

Mynd: EPA



