Lið vikunnar í enska - Þrír frá Man Utd og þrír frá Palace

Garth Crooks, sérfræðingur BBC, velur úrvalslið vikunnar.

Markvörður: Aaron Ramsdale (Arsenal) - Fantaflottur í sigri gegn Leicester og leikgleðin skín af honum.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Marc Guehi (Crystal Palace) - Palace varðist frábærlega gegn City og Guehi var sérstaklega öflugur.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Raphael Varane (Man Utd) - Lék eins og kóngur í þriggja miðvarða kerfi United í sigrinum gegn Tottenham.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Gabriel (Arsenal) - Skoraði og var öflugur varnarlega gegn Leicester.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Reece James (Chelsea) - Skoraði tvö mörk gegn Newcastle, eitt með vinstri og annað með hægri.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Declan Rice (West Ham) - Hamrarnir halda áfram að spila frábærlega og Rice heldur áfram að vera geggjaður. Skoraði í sigrinum gegn Villa.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Conor Gallagher (Crystal Palace) - Englendingurinn ungi fer með himinskautum. Mark og stoðsending gegn Man City.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Enock Mwepu (Brighton) - Var frábær í 2-2 jafnteflinu gegn Liverpool og skoraði magnað mark.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Cristiano Ronaldo (Man Utd) - Skoraði og átti stoðsendingu í 3-0 sigrinum gegn Tottenham.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Edinson Cavani (Man Utd) - Þakkaði traustið, fékk byrjunarliðsleik og skoraði laglega.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Wilfried Zaha (Crystal Palace) - Skoraði og gerði varnarmönnum City lífið leitt.

Mynd: EPA


Mynd: BBC



