Lið vikunnar í enska - Fjórir fulltrúar Liverpool


Mynd: BBC


Mynd: BBC

Arsenal vann botnlið Newcastle 2-0, Aston Villa hefur unnið báða leikina undir stjórn Steven Gerrard og lagði Crystal Palace á laugardag 2-1 og Leicester vann Watford 4-2 í skemmtilegum leik.
Brentford vann langþráðan sigur gegn Everton en markalaust var í Norwich - Wolves og Brighton - Leeds. Þá var leik Leeds og Tottenham frestað vegna snjókomu.
Heimild: BBC

Markvörður: David de Gea (Man Utd) - Átti mikilvægar vörslur gegn toppliðinu.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Antonio Rudiger (Chelsea) - Átti virkilega öflugan leik en hefði getað reynst hetjan í blálokin þegar hann skaut yfir úr dauðafæri.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Það eru ekki margir miðverðir sem eru færir um að skora mörk eins og það sem Van Dijk gerði gegn Dýrlingunum.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Nuno Tavares (Arsenal) - Bakvörðurinn ungi er óhræddur og átti frábæra stoðsendingu á Bukayo Saka.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Bukayo Saka (Arsenal) - Var Newcastle verulega erfiður og skoraði mjög gott mark.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Thiago Alcantara (Liverpool) - Liverpool hafði mikla yfirburði gegn Southampton og Thiago naut sín í botn.

Mynd: EPA

Miðjumaður: James Maddison (Leicester City) - Mark og tvær stoðsendingar gegn Watford. Öflugur vinnudagur.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: John McGinn (Aston Villa) - Skoraði hörkumark og var maður leiksins á Selhurst Park.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - Diogo Jota kemst ekki í úrvalsliðið þrátt fyrir frábæra frammistöðu, ástæðan er frammistaða Salah og Sadio Mane.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Jamie Vardy (Leicester City) - Var í markaskónum í gær og tengdi afskaplega vel við Maddison.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Sadio Mane (Liverpool) - Senegalinn var í sínu besta stuði og Southampton átti engin svör.

Mynd: EPA



