Óskar Braga aðstoðar Hörð Snævar á Dalvík (Staðfest)
Óskar Bragason hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Dalvíkur/Reynis þar sem hann mun aðstoða Hörð Snævar Jónsson aðalþjálfara.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24403 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Óskar Bragason hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Dalvíkur/Reynis þar sem hann mun aðstoða Hörð Snævar Jónsson aðalþjálfara.
Slóvakíski varnarjaxlinn Milan Skriniar er búinn að skrifa undir samning við Fenerbahce sem gildir út tímabilið.
Marokkóski sóknartengiliðurinn Hakim Ziyech er búinn að skrifa undir samning við Al-Duhail í Katar eftir að hafa fengið að rifta við Galatasaray í Tyrklandi.
Hlín Eiríksdóttir er búin að skrifa undir samning við Leicester City sem leikur í efstu deild enska kvennaboltans.
Bandaríska félagið Atlanta United FC er búið að staðfesta kaup á Miguel Almirón, paragvæskum sóknartengiliði Newcastle United.
Þýska félagið RB Leipzig hefur keypt Xavi Simons frá Paris Saint-Germain. Þessi 21 árs hollenski landsliðsmaður hefur verið á láni hjá Leipzig frá því sumarið 2023. Nú hefur Leipzig keypt hann alfarið og hann skrifað undir samning til 2027. <i>„Mér líður mjög vel í Leipzig og er stoltur af því hvað ég er í miklum metum hjá félaginu. Nú vil ég hjálpa liðinu að komast í Meistaradeildina sjöunda árið í röð og fara til Berlínar í bikarúrslitaleikinn. Það skiptir mestu máli núna!"</i> segir Simons. Sagt er að kaupverðið sé 50 milljónir evra plús bónusgreiðslur. Ef allar kröfur verða uppfylltar geta bónusgreiðslurnar hækkað verðmiðann upp í 80 milljónir evra.
Óskar Örn Hauksson er farinn frá Víkingi eftir árs veru hjá félaginu. Hann var fyrst ráðinn til félagsins sem styrktarþjálfri en meðfram því kom hann við sögu í níu deildarleikjum og einum bikarleik á síðasta tímabili. Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, staðfesti tíðindi í samtali við Fótbolta.net í dag. Óskar Örn varð fertugur í ágúst og er leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi. Hann hefur skorað 88 mörk í 382 leikjum í efstu deild. Hann varð leikjahæsti leikmaður í deidlarkeppni á Íslandi um tveimur vikum áður en fagnaði fertugasta afmælisdeginum síðasta sumar þegar hann lék sinn 440. deildarleik á ferlinum.
Steven Gerrard er hættur sem stjóri Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu. Félagið hefur staðfest þetta og segir um sameiginlega ákvörðun að ræða. Gerrard var átján mánuði við stjórnvölinn en hann tók við í júlí 2023. Gengi Al-Ettifaq undir stjórn Gerrard hefur ekki verið eftir væntingum og liðið aðeins unnið fimm af sautján leikjum sínum á þessu tímabili. Það er fimm stigum fyrir ofan fallsæt.
Niko Kovac var í morgun tilkynntur sem nýr stjóri þýska félagsins Dortmund sem hefur verið í stjóraleit frá því að Nuri Sahin var rekinn fyrir um viku síðan. Kovac skrifar undir eins og hálfs árs samning, gildir út næsta tímabil. Hann tekur formlega við af bráðabirgðastóranum Mike Tullberg eftir leik Dortmund gegn Heidenheim á sunnudag.
Sádi-arabíska félagið Al Ahli hefur krækt í belgíska miðvörðinn Matteo Dams frá hollenska félaginu PSV Eindhoven. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Al Ahli.
Enski sóknarmaðurinn Louie Barry er mættur til enska B-deildarfélagsins Hull City á láni frá Aston Villa út þessa leiktíð.
Brasilíski varnarmaðurinn Danilo er kominn aftur til heimalandsins og hefur nú verið formlega staðfestur sem nýr leikmaður Flamengo.
Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen tilkynntu í dag komu argentínska leikmannsins Emi Buendía frá Aston Villa en hann kemur á láni út tímabilið.
Markvörðurinn Elaina LaMacchia er gengin í raðir Fram á nýjan leik eftir að hafa spilað með Aftureldingu síðasta sumar. Hún lék með Fram sumarið 2023 og lék þá afar vel. <i>„Við Framarar þekkjum Elainu vel, þar sem hún spilaði með liðinu í Lengjudeildinni tímabilið 2023. Hún stóð sig frábærlega það sumar en valdi svo að fara til Aftureldingar síðasta sumar, þar sem hún var valin í lið ársins í Lengjudeildinni þrátt fyrir að hafa aðeins spilað hálft tímabilið áður en hún meiddist,"</I> segir í tilkynningu Fram.
Bandaríski markmaðurinn Monica Elizabeth Wilhelm er búin að semja við sænska félagið Eskilstuna. Monica hefur spilað með Tindastóli síðustu tvö ár í Bestu deildinni og staðið sig vel. Hún var einu sinni leikmaður umferðarinnar og fjórum sinnum í liði umferðarinnar tímabilið 2023 og einu sinni í liði umferðarinnar á síðasta tímabili. Monica verður 25 ára í febrúar en hún kom á Sauðárkrók eftir að hafa spilað með háskólaliði í Iowa þar á undan.
Spænski varnarmaðurinn Pablo Mari er genginn til liðs við Fiorentina frá Roma. Fiorentina borgaði um 2 milljónir evra fyrir þennan 31 árs gamla miðvörð. Hann skrifaði undir eins og hálfs árs samning.
Bayern München hefur staðfest að markvörðurinn Jonas Urbig sé genginn í raðir félagsins frá Köln. Urbig er 21 árs gamall og hefur verið aðalmarkvörður Köln á þessari leiktíð. Hann þykir einn mest spennandi markvörður Þýskalands.
Tveir leikmenn sem voru hjá KA á síðasta tímabili eru búnir að semja við félög erlendis. Það eru þeir Darko Bulatovic og Kristijan Jajalo. Darko sneri aftur í KA um mitt sumar í fyrra eftir að hafa áður leikið með liðinu tímabilið 2017. Darko kom inn í stað Birgis Baldvinssonar sem hélt til Bandaríkjanna til að ljúka háskólanámi. Svartfellingurinn reynslumikli spilaði tíu deildarleiki og bikarúrslitaleikinn þar sem KA lagði Víking. Hann er 35 ára, örvfættur varnarmaður og samdi við Arsenal Tivat sem er í úrvalsdeildin í Svartfjallalandi. Deildin þar er í vetrarfríi en fer aftur af stað eftir rúmar þrjár vikur.
Ítalska stórveldið Juventus er búið að staðfesta félagaskipti Renato Veiga frá Chelsea.
Portúgalska stórveldið FC Porto er búið að ráða inn nýjan þjálfara eftir að Vítor Bruno var rekinn fyrir viku síðan eftir þrjá tapleiki í röð.