Fotbolti.net
28.01.25 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Martín Anselmi tekinn við hjá Porto (Staðfest)

Martín Anselmi tekinn við hjá Porto (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Portúgalska stórveldið FC Porto er búið að ráða inn nýjan þjálfara eftir að Vítor Bruno var rekinn fyrir viku síðan eftir þrjá tapleiki í röð.
Martín Anselmi er tekinn við stjórn á aðalliðinu og skrifar hann undir tveggja ára samning við Porto, en hann starfaði síðast sem aðalþjálfari Cruz Azul í Mexíkó.

Anselmi er 39 ára gamall Argentínumaður sem hefur einnig stýrt Independiente del Valle frá Ekvador og Unión La Calera frá Síle á þjálfaraferlinum, eftir að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari hjá hinum ýmsu félagsliðum í Suður- og Mið-Ameríku.

André Villas-Boas, forseti Porto og fyrrum þjálfari liðsins, segist binda miklar vonir við Anselmi.

Porto er í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar sem stendur, sex stigum á eftir toppliði Sporting CP.

Martín Anselmi tekinn við hjá Porto (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.