Fotbolti.net
29.01.25 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson

Villa lánar Louie Barry til Hull (Staðfest)

Villa lánar Louie Barry til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Hull City

Enski sóknarmaðurinn Louie Barry er mættur til enska B-deildarfélagsins Hull City á láni frá Aston Villa út þessa leiktíð.
Barry er 21 árs gamall og var á láni hjá Stockport County en hann gerði 24 mörk í 44 leikjum frá því hann kom fyrst til félagsins árið 2023.

Villa kallaði Barry til baka á dögunum og hefur nú sent hann upp um deild.

Hann mun spila með Hull City út tímabilið og hjálpa liðinu í fallbaráttunni í B-deildinni.

Barry var eitt sinn talinn efnilegasti leikmaður Bretlandseyja og var hann svo efnilegur að hann fór til Barcelona aðeins 15 ára gamall frá WBA en snéri aftur ári síðar og samdi við Villa.

Á tíma hans hjá Barcelona varð hann deildarmeistari með U19 ára liðinu en var óánægður með mínútufjöldann sem hann fékk og var ekki tilbúinn að bíða eftir tækifærinu. Fjölskylda Barry hefur stutt Aston Villa alla ævi og var því ekki erfitt að stökkva á tækifærið að fara þangað.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.