Bandaríska félagið Atlanta United FC er búið að staðfesta kaup á Miguel Almirón, paragvæskum sóknartengiliði Newcastle United.
Newcastle keypti Almirón frá Atlanta United fyrir sex árum síðan og spilaði leikmaðurinn 223 keppnisleiki fyrir enska úrvalsdeildarfélagið. Á sínu besta tímabili skoraði Almirón 11 mörk í 34 úrvalsdeildarleikjum.
Almirón verður 31 árs í næstu viku og gerir þriggja ára samning við Atlanta, með möguleika á eins árs framlengingu.
Atlanta er talið borga um 10 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem félagið seldi til Newcastle fyrir 21 milljón í janúar 2019.
Atlanta er einnig að ganga frá kaupum á Emmanuel Latte Lath frá Middlesbrough, en hann hefur verið í góðu stuði í Championship deildinni á leiktíðinni.
It was always Atlanta.
— Atlanta United FC (@ATLUTD) January 30, 2025
Welcome ????????????????, Miggy. pic.twitter.com/5EkDogymgI
Athugasemdir