Fotbolti.net
29.01.25 - 18:29
Brynjar Ingi Erluson

Emi Buendía til Bayer Leverkusen (Staðfest)

Emi Buendía til Bayer Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Bayer Leverkusen

Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen tilkynntu í dag komu argentínska leikmannsins Emi Buendía frá Aston Villa en hann kemur á láni út tímabilið.
Buendía er 28 ára gamall sóknarsinnaður leikmaður sem hefur verið á mála hjá Villa frá 2021. Hann kom til félagsins frá Norwich eftir að hafa verið valinn besti leikmaður ensku B-deildarinnar tímabilið á undan.

Hann hefur átt í erfiðleikum með að vinna sér sæti í liði Villa á þessu tímabili eftir að hafa verið frá allt síðasta tímabil vegna hnémeiðsla.

Argentínumaðurinn ákvað því að leita annað til að fá meiri spiltíma en hann er nú genginn í raðir Bayer Leverkusen á láni út leiktíðina.

Leverkusen á möguleika á því að kaupa hann fyrir 20 milljónir evra á meðan lánsdvölinni stendur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.