Ítalska stórveldið Juventus er búið að staðfesta félagaskipti Renato Veiga frá Chelsea.
Veiga kemur á lánssamningi sem gildir út tímabilið og borgar Juventus um 4 milljónir evra fyrir. Lánssamningnum fylgir enginn kaupmöguleiki og því mun Veiga snúa aftur til Chelsea næsta sumar.
Veiga er 21 árs gamall og spilar sem miðvörður að upplagi en er einnig liðtækur sem vinstri bakvörður eða varnartengiliður.
Þessi fjölhæfi leikmaður er uppalinn hjá Sporting í heimalandi sínu Portúgal og á hann nú þegar þrjá A-landsleiki að baki þrátt fyrir ungan aldur.
Veiga hefur leikið fyrir RB Salzburg og FC Basel hingað til á ferlinum, auk varaliðs Sporting, þar sem hann fékk þó aldrei tækifæri með aðalliðinu.
????? Renato is ready to make his mark in ??
— JuventusFC ???????????????? (@juventusfcen) January 27, 2025
???? Full interview ??
Athugasemdir