Fotbolti.net
30.01.25 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

Hlín Eiríks til Leicester (Staðfest)

Hlín hefur skorað 6 mörk í 43 A-landsleikjum.

Hlín hefur skorað 6 mörk í 43 A-landsleikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Hlín Eiríksdóttir er búin að skrifa undir samning við Leicester City sem leikur í efstu deild enska kvennaboltans.
Leicester er í fallbaráttu í deildinni með 9 stig eftir 12 umferðir, þó heilum fjórum stigum fyrir ofan eina fallsætið.

Hlín er 24 ára gömul og kemur til Leicester úr röðum Kristianstad, þar sem hún var nýlega búin að skrifa undir nýjan samning.

Hlín gerir tveggja og hálfs árs samning við Leicester sem gildir út júní 2027 og er hún strax liðtæk í næsta deildarleik liðsins gegn Everton næsta sunnudag.

„Ég er virkilega ánægð með að vera komin hingað og ég hlakka til að byrja að æfa með liðinu. Það er mikill heiður fyrir mig að vera komin hingað. Ég kem hingað með mikinn metnað og sigurvilja. Þetta er fullkomið tækifæri fyrir mig," sagði Hlín meðal annars við undirskrift á samningi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.