Fotbolti.net
30.01.25 - 12:04
Elvar Geir Magnússon

Gerrard ekki lengur stjóri Al-Ettifaq (Staðfest)

Gerrard kveður Sádi-Arabíu.

Gerrard kveður Sádi-Arabíu.

Canon

Mynd: EPA

Steven Gerrard er hættur sem stjóri Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu. Félagið hefur staðfest þetta og segir um sameiginlega ákvörðun að ræða.

Gerrard var átján mánuði við stjórnvölinn en hann tók við í júlí 2023.

Gengi Al-Ettifaq undir stjórn Gerrard hefur ekki verið eftir væntingum og liðið aðeins unnið fimm af sautján leikjum sínum á þessu tímabili. Það er fimm stigum fyrir ofan fallsæt.
Gerrard, sem er 44 ára, er fyrrum stjóri Rangers og Aston Villa. Hann er mikil goðsögn hjá Liverpool eftir leikmannaferilinn sem hann átti þar. Það var búist við því fyrir nokkrum árum að hann yrði stjóri Liverpool eftir að Jurgen Klopp hætti en annað kom á daginn. Hann náði ekki að sanna sig þegar að því kom.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.