Markvörðurinn Elaina LaMacchia er gengin í raðir Fram á nýjan leik eftir að hafa spilað með Aftureldingu síðasta sumar. Hún lék með Fram sumarið 2023 og lék þá afar vel.
„Við Framarar þekkjum Elainu vel, þar sem hún spilaði með liðinu í Lengjudeildinni tímabilið 2023. Hún stóð sig frábærlega það sumar en valdi svo að fara til Aftureldingar síðasta sumar, þar sem hún var valin í lið ársins í Lengjudeildinni þrátt fyrir að hafa aðeins spilað hálft tímabilið áður en hún meiddist," segir í tilkynningu Fram.

„Við vitum að í Elainu erum við að fá úrvals markmann sem mun hjálpa okkur gríðarlega í Bestu deildinni."
Stuðningsmenn Fram fagna þessum tíðindum og þar á meðal er sagnfræðingurinn Stefán Pálsson. „Frábært! Elaina sumarið 2023 var besti kvenmarkvörður sem ég hef séð spila á Íslandi fyrir nokkurt félag," segir Stefán.
Fram endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili og leikur því í Bestu deildinni í sumar.
Athugasemdir