Fotbolti.net
28.01.25 - 14:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Frá KA til Austurríkis og Svartfjallalands (Staðfest)

Jajalo með bikarinn.

Jajalo með bikarinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tveir leikmenn sem voru hjá KA á síðasta tímabili eru búnir að semja við félög erlendis. Það eru þeir Darko Bulatovic og Kristijan Jajalo.

Darko sneri aftur í KA um mitt sumar í fyrra eftir að hafa áður leikið með liðinu tímabilið 2017. Darko kom inn í stað Birgis Baldvinssonar sem hélt til Bandaríkjanna til að ljúka háskólanámi. Svartfellingurinn reynslumikli spilaði tíu deildarleiki og bikarúrslitaleikinn þar sem KA lagði Víking.

Hann er 35 ára, örvfættur varnarmaður og samdi við Arsenal Tivat sem er í úrvalsdeildin í Svartfjallalandi. Deildin þar er í vetrarfríi en fer aftur af stað eftir rúmar þrjár vikur.
Jajalo þakkar fyrir sig og kveður íslenska boltann
TENGT EFNI

Jajalo þakkar fyrir sig og kveður íslenska boltann

Markmaðurinn Jajalo var hjá KA í sex tímabil en hann kom frá Grindavík eftir tímabilið 2018 en hann kom fyrst til Íslands í sumarglugganum 2016. Hann lék alls 101 leik í efstu deild, 12 leiki í B-deild, 11 í bikarnum og fimm Evrópuleiki.

Á síðasta tímabili varði hann mark KA í fjórum leikjum.

Jajalo er 31 árs, fæddur í Bosníu & Hersegóvínu en er einnig með króatískan ríkisborgararétt.

Hann er búinn að semja við Dinamo Helfort sem er í fjórðu efstu deild í Austurríki.
Darko í úrslitaleiknum gegn Víkingi.

Darko í úrslitaleiknum gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.