Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 15:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óskar Örn farinn frá Víkingi (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Örn Hauksson er farinn frá Víkingi eftir árs veru hjá félaginu. Hann var fyrst ráðinn til félagsins sem styrktarþjálfri en meðfram því kom hann við sögu í níu deildarleikjum og einum bikarleik á síðasta tímabili.

Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, staðfesti tíðindi í samtali við Fótbolta.net í dag.

Óskar Örn varð fertugur í ágúst og er leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi. Hann hefur skorað 88 mörk í 382 leikjum í efstu deild.

Hann varð leikjahæsti leikmaður í deidlarkeppni á Íslandi um tveimur vikum áður en fagnaði fertugasta afmælisdeginum síðasta sumar þegar hann lék sinn 440. deildarleik á ferlinum.

Hans síðasti leikur var gegn ÍA í næstsíðustu umferð deildarinnar í fyrra. Hann lagði þar upp sigurmark leiksins sem Danijel Dejan Djuric skoraði.

Ekki er ljóst hvort að Óskar haldi áfram að spila en ferill hans spannar rúmlega tvo áratugi. Hann hefur leikið fyrir uppelsidfélagið Njarðvík, Grindavík, KR, Grindavík og Víkingi á Íslandi. Erlendis lék hann með Sandnes Ulf og FC Edmonton, bæði á láni frá KR. Hann lék á árunum 2009 og 2010 sitthvorn A-landsleikinn.

„Við endursömdum ekki við Óskar Örn og hann er frjáls ferða sinna. Hvort hann haldi áfram verður hann að ákveða sjálfur," segir Kári.
Athugasemdir
banner
banner
banner