Fotbolti.net
30.01.25 - 22:18
Ívan Guðjón Baldursson

Óskar Braga aðstoðar Hörð Snævar á Dalvík (Staðfest)

Óskar Braga aðstoðar Hörð Snævar á Dalvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Dalvík/Reynir

Óskar Bragason hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Dalvíkur/Reynis þar sem hann mun aðstoða Hörð Snævar Jónsson aðalþjálfara.
Óskar lék meðal annars fyrir KA og Magna á ferli sínum sem leikmaður og tók síðar við hjá Magna sem þjálfari.

Hann býr yfir mikilvægri reynslu sem mun reynast vel á komandi tímabili, enda er Hörður Snævar að starfa sem aðalþjálfari í fyrsta sinn eftir að hafa setið í stjórn Dalvíkur/Reynis.

„Ráðningin á Óskari er síðasta púslið inn í sterkt þjálfarateymi liðsins og það er gríðarlega ánægjulegt að fá svona reynslumikinn mann í teymið til að aðstoða Hödda," segir meðal annars í tilkynningu frá Dalvík/Reyni.

„Við bjóðum Skara hjartanlega velkominn og hlökkum mikið til samstarfsins."

Dalvík/Reynir féll úr Lengjudeildinni í fyrra og leikur því í 2. deildinni í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.