Fotbolti.net
29.01.25 - 19:30
Brynjar Ingi Erluson

Danilo til Flamengo (Staðfest)

Danilo til Flamengo (Staðfest)
Canon

Mynd: Flamengo

Brasilíski varnarmaðurinn Danilo er kominn aftur til heimalandsins og hefur nú verið formlega staðfestur sem nýr leikmaður Flamengo.
Á dögunum náði Danilo samkomulagi við ítalska félagið Juventus um riftun á samningi og í kjölfarið skrifaði hann undir hjá Flamengo.

Juventus var ákveðið í því að losa sig við Danilo sem hafði gegnt hlutverki fyrirliða síðan Giorgio Chiellini yfirgaf félagið.

Ferill Danilo í Evrópu var farsæll en hann lék einnig með Manchester City, Porto og Real Madrid.

Á þrettán árum hans í Evrópu tókst honum að vinna sextán titla með þessum fjórum félögum.

Hjá Flamengo hittir hann besta vin sinn og fyrrum liðsfélaga, Alex Sandro, sem gekk í raðir félagsins frá Juventus á síðasta ári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.