Fotbolti.net
29.01.25 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stóð sig vel á Króknum og samdi í Svíþjóð (Staðfest)

Stóð sig vel á Króknum og samdi í Svíþjóð (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
Bandaríski markmaðurinn Monica Elizabeth Wilhelm er búin að semja við sænska félagið Eskilstuna. Monica hefur spilað með Tindastóli síðustu tvö ár í Bestu deildinni og staðið sig vel.

Hún var einu sinni leikmaður umferðarinnar og fjórum sinnum í liði umferðarinnar tímabilið 2023 og einu sinni í liði umferðarinnar á síðasta tímabili. Monica verður 25 ára í febrúar en hún kom á Sauðárkrók eftir að hafa spilað með háskólaliði í Iowa þar á undan.
<b>Sterkust í 16. umferð</b> - Markverðir elska Laugardalinn
TENGT EFNI

Sterkust í 16. umferð - Markverðir elska Laugardalinn

Eskilstuna er í næstefstu deild Svíþjóðar og segir þjálfari liðsins að eftir komu Monicu og annars markvarðar (Tea Lundmark) sé liðið með besta markvarðadúó í deildinni.

„Ég er spennt að koma í lið með mikla ástríðu og metnað til að verða best. Ég held að við getum gert frábæra hluti á þessu ári og ég get ekki beðið eftir að vera hluti af því," sagði Monica við undirskrift.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.