Fotbolti.net
30.01.25 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Ziyech skrifar undir hjá Al-Duhail (Staðfest)

Ziyech skrifar undir hjá Al-Duhail (Staðfest)
Canon

Mynd: Galatasaray

Marokkóski sóknartengiliðurinn Hakim Ziyech er búinn að skrifa undir samning við Al-Duhail í Katar eftir að hafa fengið að rifta við Galatasaray í Tyrklandi.
Ziyech kemur á frjálsri sölu eftir eitt og hálft ár með Galatasaray, en þar áður lék hann með Chelsea í enska boltanum.

Ziyech, sem verður 32 ára í mars, skoraði 8 mörk í 23 leikjum á sínu fyrsta tímabili með Galatasaray en missti byrjunarliðssætið sitt í haust.

Ziyech á leið til Katar - Hraunaði yfir stjórann
TENGT EFNI

Ziyech á leið til Katar - Hraunaði yfir stjórann



Ekki er greint frá samningslengd en talið er að Ziyech geri aðeins sex mánaða samning við Al-Duhail og verður hann því falur á frjálsri sölu næsta sumar.

Ziyech er fyrirliði marokkóska landsliðsins og gæti snúið aftur í evrópska boltann á næstu leiktíð.

Al-Nasr í Dúbaí reyndi einnig að krækja í Ziyech en leikmaðurinn kaus að fara frekar til Katar.

Luis Alberto, fyrrum leikmaður Lazio og Liverpool, er stjörnuleikmaðurinn í Al-Duhail sem stendur.

Ziyech skrifar undir hjá Al-Duhail (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.