Fotbolti.net
30.01.25 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Al Ahli fær efnilegan varnarmann frá PSV (Staðfest)

Al Ahli fær efnilegan varnarmann frá PSV (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sádi-arabíska félagið Al Ahli hefur krækt í belgíska miðvörðinn Matteo Dams frá hollenska félaginu PSV Eindhoven. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Al Ahli.
Dams er tvítugur leikmaður sem er U21 árs landsliðsmaður hjá Belgíu.

Hann hefur spilað 24 leiki með aðalliði PSV á þessu tímabili og kemur því verulega á óvart að hann sé að fara svo ungur að árum til Sádi-Arabíu.

Al Ahli greiðir PSV 10 milljónir evra fyrir kaupin á Dams sem skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið.

Það er greinilegt að peningar tala því Dams hefur alla burði til þess að ná langt í Evrópuboltanum.

Þetta eru þá sérstaklega góð skipti fyrir Al Ahli sem þarf ekki að skrá leikmenn í hópinn sem eru 21 árs eða yngri.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.