Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25124 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.01.2025, 16:13

Vigdís Lilja seld til Anderlecht (Staðfest)

Íslandsmeistarar Breiðablik hafa selt Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur til belgísku meistaranna í Anderlecht. Hún er komin með félagaskipti til Belgíu og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2027. Vigdís, sem er uppalin í Kópavogi, er fædd árið 2005 og hefur spilað með meistaraflokki Breiðabliks frá árinu 2020. Vigdís á að baki fjölda leikja með U-16, U-17, U-19 og U-23 ára landsliðum Íslands. Framherjinn skoraði ellefu mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni í fyrra þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari. Hún varð einnig Íslandsmeistari 2020 og bikarmeistari 2021.

FRÉTTIR31.01.2025, 15:11

Pétur Bjarnason farinn frá Vestra (Staðfest)

Pétur Bjarnason verður ekki með Vestra á komandi tímabili. Þetta staðfestir hann við Fótbolta.net. Fótbolti.net fékk ábendingu um að skórnir gætu verið komnir upp í hillu hjá Pétri. Pétur var spurður út í það og sagði að það væri ekki í plönum hans eins og er að spila fótbolta í sumar. Pétur er 28 ára framherji sem uppalinn er hjá Vestra (BÍ/Bolungarvík) og sneri aftur heim í Vestra á síðasta tímabili eftir eitt tímabil með Fylki.

FRÉTTIR31.01.2025, 11:09

Kristian Hlyns lánaður til Sparta Rotterdam (Staðfest)

Kristian Nökkvi Hlynsson er genginn í raðir Sparta Rotterdam á láni frá Ajax. Lánssamningurinn gildir út tímabilið. Kristian er 21 árs sóknarsinnaður miðjumaður. Kristian hefur verið hjá Ajax í fimm ár og spilaði 34 leiki með liðinu á síðasta tímabili og skoraði sjö mörk. Tækifærin hafa verið af skornum skammti á þessu tímabili og meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn. Kristian vonast til þess að fá að spila meira hjá Sparta. Hjá Sparta hittir hann fyrir þjálfarann Maurice Steijn sem var þjálfari Kristians hjá Ajax í byrjun síðasta tímabils.

FRÉTTIR31.01.2025, 10:46

Málfríður Anna aftur til Danmerkur (Staðfest)

Málfíður Anna Eiríksdóttir hefur fengið félagaskipti í danska félagið B93 og mun spila með liðinu út tímabilið í Danmörku. Hún gerði slíkt hið sama í fyrra en þá skipti hún yfir í Val áður en glugginn á Íslandi lokaði í apríl. Valsarinn er að klára meistaranám í gervigreind við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn og ætlar að spila meðfram því.

FRÉTTIR31.01.2025, 09:42

Mikael og Onana til Genoa (Staðfest) - Mikael kemur í sumar

Genoa hefur tryggt sér íslenska landsliðsmanninn Mikael Egil Ellertsson. Hann mun þó ekki ganga í raðir félagsins fyrr en í sumar, hann klárar tímabilið á láni hjá Venezia þaðan sem hann er keyptur. Genoa borgar um 3,5 milljónir evra fyrir Mikael sem gerir þetta að einni stærstu sölu í sögu Venezia. Mikael gekk til liðs við Venezia frá Spezia í janúar árið 2023. Hann hefur leikið 70 leiki og skorað sex mörk fyrir félagið. Liðið er í 19. sæti Serie A með 16 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Genoa er í 12. sæti deildarinnar en liðið hefur verið á uppleið síðan Arsenal goðsögnin Patrick Vieira tók við liðinu í nóvember en þá var liðið í 17. sæti.

FRÉTTIR31.01.2025, 09:05

Höttur/Huginn fær Gerard frá Hamri (Staðfest)

Höttur/Huginn er búinn að krækja í spænska markvörðinn Gerard Tomás Iborra frá Hamri, en hann er 26 ára gamall og stóð sig frábærlega með Hvergerðingum í fyrra.

FRÉTTIR31.01.2025, 08:00

Embla Katrín í Fylki (Staðfest)

Embla Katrín Oddsteinsdóttir er gengin til liðs við Fylki og gerir hún tveggja ára samning við Árbæinga.

FRÉTTIR30.01.2025, 19:40

Ziyech skrifar undir hjá Al-Duhail (Staðfest)

Marokkóski sóknartengiliðurinn Hakim Ziyech er búinn að skrifa undir samning við Al-Duhail í Katar eftir að hafa fengið að rifta við Galatasaray í Tyrklandi.

FRÉTTIR30.01.2025, 16:00

Leipzig búið að kaupa Xavi Simons (Staðfest)

Þýska félagið RB Leipzig hefur keypt Xavi Simons frá Paris Saint-Germain. Þessi 21 árs hollenski landsliðsmaður hefur verið á láni hjá Leipzig frá því sumarið 2023. Nú hefur Leipzig keypt hann alfarið og hann skrifað undir samning til 2027. <i>„Mér líður mjög vel í Leipzig og er stoltur af því hvað ég er í miklum metum hjá félaginu. Nú vil ég hjálpa liðinu að komast í Meistaradeildina sjöunda árið í röð og fara til Berlínar í bikarúrslitaleikinn. Það skiptir mestu máli núna!"</i> segir Simons. Sagt er að kaupverðið sé 50 milljónir evra plús bónusgreiðslur. Ef allar kröfur verða uppfylltar geta bónusgreiðslurnar hækkað verðmiðann upp í 80 milljónir evra.

FRÉTTIR30.01.2025, 15:51

Óskar Örn farinn frá Víkingi (Staðfest)

Óskar Örn Hauksson er farinn frá Víkingi eftir árs veru hjá félaginu. Hann var fyrst ráðinn til félagsins sem styrktarþjálfri en meðfram því kom hann við sögu í níu deildarleikjum og einum bikarleik á síðasta tímabili. Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, staðfesti tíðindi í samtali við Fótbolta.net í dag. Óskar Örn varð fertugur í ágúst og er leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi. Hann hefur skorað 88 mörk í 382 leikjum í efstu deild. Hann varð leikjahæsti leikmaður í deidlarkeppni á Íslandi um tveimur vikum áður en fagnaði fertugasta afmælisdeginum síðasta sumar þegar hann lék sinn 440. deildarleik á ferlinum.

FRÉTTIR30.01.2025, 12:04

Gerrard ekki lengur stjóri Al-Ettifaq (Staðfest)

Steven Gerrard er hættur sem stjóri Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu. Félagið hefur staðfest þetta og segir um sameiginlega ákvörðun að ræða. Gerrard var átján mánuði við stjórnvölinn en hann tók við í júlí 2023. Gengi Al-Ettifaq undir stjórn Gerrard hefur ekki verið eftir væntingum og liðið aðeins unnið fimm af sautján leikjum sínum á þessu tímabili. Það er fimm stigum fyrir ofan fallsæt.

FRÉTTIR30.01.2025, 09:43

Kovac tekur við Dortmund eftir helgi (Staðfest) - Gerir nokkuð stuttan samning

Niko Kovac var í morgun tilkynntur sem nýr stjóri þýska félagsins Dortmund sem hefur verið í stjóraleit frá því að Nuri Sahin var rekinn fyrir um viku síðan. Kovac skrifar undir eins og hálfs árs samning, gildir út næsta tímabil. Hann tekur formlega við af bráðabirgðastóranum Mike Tullberg eftir leik Dortmund gegn Heidenheim á sunnudag.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.