Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   fös 31. janúar 2025 10:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Málfríður Anna aftur til Danmerkur (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Málfíður Anna Eiríksdóttir hefur fengið félagaskipti í danska félagið B93 og mun spila með liðinu út tímabilið í Danmörku. Hún gerði slíkt hið sama í fyrra en þá skipti hún yfir í Val áður en glugginn á Íslandi lokaði í apríl.

Valsarinn er að klára meistaranám í gervigreind við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn og ætlar að spila meðfram því.

„Ég er búin að vera vinna mig upp úr meiðslum frá því síðasta sumar og er að fara spila með B93 sem er í neðri hluta efstu deildar. Það er svo sem ekkert komið á hreint varðandi framhaldið, ég mun allavega klára tímabilið hér og svo langar mig helst aftur í Val þegar ég flyt heim," segir Málfríður.

Framundan eru tíu leikir og verða tvö efstu liðin í fallumspilinu í efstu deild á næsta tímabili. Deildin í Danmörku fer aftur af stað um miðjan mars.

Málfríður Anna er 27 ára fjölhæfur leikmaður sem hefur verið hjá Val allan sinn feril. Á síðasta tímabili kom hún við sögu í sjö leikjum með Val í deildinni og tveimur í bikarnum.
Athugasemdir
banner
banner